Andlitið á Má

Már Örlygsson - ferilskrá

Fæddur árið 1975. Ólst upp á Siglufirði. Giftur Kristínu R. Berman textíl- og leikmyndahönnuði og á með henni einn son.

Áhugi/sérsvið

HTML, XHTML, XML, CSS, vefútgáfa og blogg, vefumsjónarkerfi, RSS, viðmótshönnun, nytsemisúttektir, aðgengi fatlaðra, aðgengi handtölva og smátækja, upplýsingahönnun, varanleiki rafrænnar útgáfu, myndlist - netlist, rafræn hugverk, grasrótarskipulag, rafræn viðskipti, markaðssetning á netinu.

Einnig lágmarks þekking/áhugi á: Perl, JSP, Javascript, SQL, Flash, prentsmíði, útlitshönnun, ljósmyndun.

Störf

Frá 2001
Sjálfstætt starfandi. Vefforritun, viðmótshönnun, hönnun aðgengis fyrir fatlaða og almenn vefráðgjöf, auk kennslu, fyrirlestra og smærri verkefna við útlitshönnun o.þ.h. Helstu viðskiptavinir: Hugsmiðjan - Eplica (tugir verkefna) og Betware auk fjölda smærri verkefna fyrir Kennaraháskóla Íslands, Íslandsbanka, Friðrik Skúlason ehf, Landssamtök smábátaeigenda, Síldarminjasafnið á Siglufirði, Listaháskóla Íslands, Landssímann, o.fl.
1998 til 2001
Gæðamiðlun, Mekkano, og Kveikir hf. Vefforritun, útlitshönnun, viðmótshönnun, gæðaúttektir og altmugligt. Gæðamiðlun var eitt fyrsta "dot com" fyrirtækið á landinu, sem breyttist við samruna við GSP almannatengsl í Mekkano, og að lokum í Kveiki hf.
1997 til 1998
Sjálfstætt starfandi. Útlitshönnun, vefforritun og prenthönnun. Viðskiptavinir: Siglufjarðarkaupstaður, Þormóður rammi - Sæberg, Síldarminjasafnið á Siglufirði, o.fl.
1996 til 1997
Auglýsingastofa Reykjavíkur. Vefsmíði, útlitshönnun og prenthönnun. Auglýsingastofa Reykjavíkur var á þessum tíma leiðandi afl í vefhönnun og vefsmíði, og markaðssetningu íslensks sjávarútvegs og ferðamannaiðnaðar á netinu.

Nám

1996 - 2001
Listaháskóli Íslands. B.A. frá skúlptúrskor myndlistardeild, skúlptúr. Lokaverk: (þá) 12.000 stafrænar ljósmyndir sem eru einnig vistaðar á vefnum: http://pics.mar.anomy.net
1992 - 1995
Menntaskólinn við Hamrahlíð. Stúdent af eðlisfræðibraut, með ríka áherslu á valáfanga í stærðfræði og eðlisfræði.

Ritstörf

Frá maí 1999, með hléum
Vefleiðari (vefdagbók, blogg) á slóðinni http://mar.anomy.net/ með persónulegum stiklupunktum í bland við leiðandi umfjöllun um fagtengd málefni, auk fjölmargra lengri greina sem margar hafa hlotið jákvæðar athygli jafnt á Íslandi sem erlendis.
Samantekt helstu greina er í smíðum.

Annað

Breiður bakgrunnur í raungreinum og forritun annars vegar og hönnun og listum hins vegar, gefur mér hæfni til að finna ferskar lausnir á vandamálum með aðferðum sem fáir hafa vald á.

Er sífellt nýjungagjarn og spenntur fyrir framþróun í heimi netvæðingar og tækni, en er engu að síður mjög naskur á að greina tímabundnar "bólur" og veikleika nýrra hugmynda og skilja kjarnann frá hisminu.

Er hugmyndaríkur og ófeiminn við að deila góðum hugmyndum með öðrum.